15.2.2008 | 09:09
IPC - Apia, Samoa
Vöknuðum á Hangaroa Hilton við þá alverstu úrhellisrigningu sem vitað er um. Öldurnar brotnuðu á klettunum í fjörunni fyrir neðan hótelið og krafturinn í regninu var þannig að maður vissi ekki hvenær þakið mundi gefa sig. Þá komumst við að því hvernig villtu hestarnir lifa af hér í grasi sem virðist sölnað og jarðvegurinn vægast sagt þurr og lítið nærandi. Við stelpurnar höfðum dressað okkur upp í kaupfélaginu daginn áður og fjárfest í alls kyns fjaðrabúningum svo að þegar við tókum allt dótið upp voða montnar var eins og við hefðum lent í illvígum koddaslag. En eins og alltaf þurftum við nauðsynlega að taka síðasta umgang í búðinni góðu fyrir brottför því ,,maður getur lengi á sig fjöðrum bætt!
Á leið okkar upp á hótel aftur gengum við framhjá bátahöfn hvar mikill mannfjöldi stóð og hvatti og klappaði fyrir hópi vægast sagt fáklæddra karlmanna sem sigldu bast-kanóum sínum út fyrir bauju (að okkur sýndist) og svo til baka og var þetta eins konar boðsigling. Það var nú eiginlega alveg augljóst á hvað konurnar á bryggjusporðinum voru að horfa á. Vöðvastæltir og síðhærðir með liðað hárið í hnút hlupu þeir á g-strengnum út í sjóinn, skelltu sér á magann og réru kanóum sínum út. Okkur fannst sem þessi íþrótt ætti alveg erindi á Sjómannadeginum heima á Íslandi! Við höfðum öll þurft að tékka út kl 10.00 en fengum að halda eftir tveimur herbergjum fram til kl 14.00 þegar við áttum að mæta til vinnu. Aðstæður til að sturta sig og snyrta voru með skemmtilegra móti. Sex freyjur saman í einu pínulitlu herbergi, ferðatöskur út um allt, röð í hárþurrkuna og nælonsokkabuxur og fjaðrabúningar út um allt, strákarnir sex í hinu herberginu mun fyrirferðaminni☺ Nema hvað.
Við tókum á móti farþegunum okkar í búningum innfæddra, strákarnir okkar krýndir fjaðurkórónum og það varð bara allt vitlaust. Þeim fannst þetta frábært uppátæki hjá okkur og eins og einn gestanna í hádegisverðinum á Anakena ströndinni daginn áður sagði: ,,You are so different from American crews, you look like you are having fun all the time ! Flugtíminn til Apia á Samoa-eyjum var 8:30 og við sluppum við að lenda á Tahiti til eldsneytistöku. Nóg var að gera á leiðinni enda tvær þjónustur og fólk farið að færa sig meira um vélina, kynnast betur innbyrðis og spjalla. Haldið var upp á tvö afmæli á leiðinni, Neil litli varð 9 ára og fékk skreytta afmælisköku rúllað upp að sætinu sínu ásamt íslenskum afmælissöng og sömuleiðis hún Susan í 3F ☺ Vorum örþreytt eftir daginn og lukum deginum með samsöng inni hjá mömmu BJ tímamismunurinn orðinn -11 klst. Anna Dís: ,, Á ég að segja ykkur nokkra fróðleiksmola? Gonsi geispandi: ,,Ertu ekki með e-mail adressurnar okkar
???


Um bloggið
9 World Wonders 6. febrúar - 2. mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært að fylgjast með ykkur í máli og myndum!
Hafið það öll sem best og njótið ferðarinnar. Væri mikið til í að vera þarna með ykkur. Verið dugleg að blogga svo við sem heima sitjum getum ,,verið með,,.
Bestu kveðjur frá Íslandi...Draupnir Rúnar Draupnis.
Draupnir Rúnar Draupnis. (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 17:02
Við viljum sjá myndir af ykkur í fjaðurskrautinu takk og mín vegna mætti alveg fylgja ein af sjómannadagsdrengjunum : ) Með þessu fylgja auðvitað eins og alltaf mínar albestu kveðjur.Og nú tel ég mig vera búna að þekkja Skagamanninn úr, er það ekki þessi með gleraugun Ása, bið að heilsa honum. kv.inga
Inga Óskars (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.