TE PITO O TE HENUA - nafli alheimsins

Eftir ferskan og fínan morgunverð skelltum við okkur í túristaleik með Páskeyja-Beatrice sem leiddi okkur í allan sannleika um sögu eyjunnar á miður góðri ensku svo greyið var vart skiljanleg. En við skutum inn í og leiðréttum hana þar til hún var farin að tala bara við Björgu á spænsku og svo túlkaði Björg fyrir okkur. Páskaeyja var fyrst uppgötvuð af Pólynesum árið 318 e.Kr. nánar tiltekið af Henua Maka sem dreymdi draum um eyjuna og flutti hingað og hafði með sér hirð manna ásamt hænsnum, rollum og bananatrjám. Frægasta einkenni eyjunnar, MOAI stytturnar sjálfar, voru hoggnar út úr bergi eldfjallsins Ranu Raraku og reistar á gröfum höfðingja ættbálkanna sem talið er að hafi verið um tólf talsins. Viðkomandi stytta var síðan verndari þess þorps sem höfðinginn var frá . Virðing og stolt ættbálksins var mæld í MOAI styttunum og var það hin mesta niðurlæging ef stytta var felld á andlitið. Hið forna tungumál innfæddra, RONGORONGO, var myndletur sem þeir hjuggu út í viðar- og steinplötur og finnast á söfnum víða um heim en aðeins eru tvær plötur til hér á eynni. Það var svo um 1300 er eyjaskeggjar kollvörpuðu trúnni og innleiddu trú á guði í dýraríkinu t.d. fugla o.fl. Þar á meðal var guðinn MAGI MAGI (okkar Maggi hefur því fengið nýtt nafn!). Það voru víst fleiri en Þorgeir okkar ljósvetningagoði sem skellti sér undir feld og lét heila þjóð skipta um trú! Til gamans má geta þess að stjórnvöld í Chile neita að breyta klukkunni hér á eynni svo hér er sólbaðsveður fram yfir kvöldmat og ekki orðið almennilega bjart á morgana fyrr en um kl 09.00. Við höfum líka tekið eftir ótrúlega fallegum stjörnuhimninum eftir að dimma tekur sem gersamlega skilur mann eftir lamaðan enda ljósmengun engin.

Um hádegisbil var okkur síðan sleppt lausum með farþegunum 47 á Anakena ströndinni þar sem A&K bauð okkur í lunch og við fengum tækifæri til að kynnast farþegunum ögn betur. Þeir eru strax farnir að tala um okkur og flugvélina sem eina fasta punktinn í tilveru þeirra, staðinn sem færir þeim öryggistilfinningu. Á meðan á hádegisverðinum stóð læddust að tjaldinu fáklæddir eggjandi páskaeggjaleggjasteggir og sólbrúnar súkkulaðimeyjar sem undir tælandi trumbuslætti og skrækum Kyrrahafsgítar sveifluðu mjöðmunum eins og þeim einum er lagið. Þau dönsuðu og sungu fyrir okkur og var stolt þeirra fyrir eyjunni og sögunni næstum áþreifanlegt. Björgu var boðið upp í dans af þremur guðdómlegum líkömum og sló hún gersamlega í gegn eins og í Hollý á discoárunum í den. Okkur langar að flytja hingað! ps. Jóa var líka boðið upp, hann hafnaði fyrstu tveimur en lét síðan til leiðast :-) pps. sökum lítils nethraða í Kyrrahafinu verður næsta myndaalbúm sett inn í down under hjá Crocodile Dundee. A&K pax screaming:,,O my God! It´s the crew! In their civil !"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey Björg ! Sendi tær bert eina lítla heilsu úr Føroyum - vónandi skilir tú heilsanina, sjálvt um hon er skrivað á føroyskum :) Komi javnan inn á blog tykkara fyri at síggja myndir og lesa um tað tit uppliva á ferðini. Framhaldandi góða ferð kring jørðina. Kærar heilsur Elin Maria

Elin Maria Bærentsen (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 11:10

2 Smámynd: Gúnna

Ohhhh hvað ég öfunda ykkur Gaman að skoða bloggið og fylgjast með. Takk fyrir skemmtileg skrif og myndir.

Happy Valentines day á morgun elskurnar. Muna þá: allir góðir við alla og knús og krams en þið eruð náttúrulega svo frábær hópur að það er örugglega "goody feeling" alla daga hjá ykkur.

Hastalavista.

Gúnna, 13.2.2008 kl. 17:24

3 identicon

Þið eruð yndisleg.  Gaman að fylgjast með ykkur, held að við séum flest með í ferðinni ykkar í huganum.  Hafið það sem allra allra best

kveðja Sigga Braga

Sigríður Bragadóttir (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 00:56

4 identicon

    Sæl öll

Svipað ástand hér og á Páskaeyjum. þ.e. stjórnvöld hafa ekki enn viljað breyta klukkunni. Annars er er staðsetningin á eyjunni meira aðkallandi vandamál. Þessi and"#%/& staðsetning sem gerir það að verkum að veðrið er aðeins frábrugðnara heldur en hjá ykkur þessa dagana. Hér skiptast á jólasnjór og haustrigningar sinn hvorn daginn sem veldur miklum skorti á gipsi í landinu þessa dagana en hægt er að hugga sig við hliðarbúgrein þeirra sem búa í kjöllurum.......... þ.e. fiskeldi.

Ég veit að það vottar fyrir öfund í þessum orðum mínum en ég óska ykkur frábærrar ferðar og skemmtið ykkur sem allra best.

p.s. Visa Valitor hafði samband við Flugfreyjufélagið og var að forvitnast um hvort rétt væri að við hefðum gengist í kortaábyrgð fyrir okkar félagsmenn í þessari heimsferð???????????????

Ásta (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 13:42

5 identicon

Það er sem ég hef alltaf sagt - flugmannslífið er hreint helv.....sit hérna og skoða bloggið ykkar og myndirnar og fæ hnút í magann við allar þessar raunir sem að þið eruð að ganga í gegnum

Er ekki frá því að Lapas sé að grennast og mátti hann varla við því.

Strákar ég var hjá konunum ykkar í vikunni og þær hafa það allar ansi gott

King Johnny (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

9 World Wonders 6. febrúar - 2. mars 2008

Höfundur

Áhöfn FI-1452
Áhöfn FI-1452
Felias Fogg okkar tíma
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...-13_47-1254
  • ...-13_47-1252
  • ...-13_47-1251
  • ...-13_47-1247
  • ...-13_47-1246

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband